Auglýsing

Könnun

átt þú þér bloggsíðu?

Klukkan

Sweet Summer!

31. júlí 2008 klukkan 02:26
Það er lok Júlí  og sumarið hefur verið sætt :)

















LOVE        Alberta

Drunga göng

07. maí 2008 klukkan 22:39

Mynd færslunnar:





Hvað er á endanum?


-AbertaGullveig-

Tilhlökkun

26. apríl 2008 klukkan 21:39


27.Apríl





...er á eftir :)


Kærleikur í krús

22. apríl 2008 klukkan 19:13
Já, þetta er ágætur dagur í dag.

Maður hefur ekki hugmynd hvað maður á að skrifa hér.. Þetta er svolítið lame bloggsíða.

Alberta, Albó, Gullvieg, Berta, Albó Gold, Róberta, Albesta og Bertie .. Þetta er ég kölluð, af allskins vittkaysingum... Allavega, var ég að fá mér bíl :)
Hann ku vera Subaru Legacy. Voðalega þægilegur til aksturs og góðar græjur fyrir Dj-inn. Ljósgrár og kemur í staðinn fyrir fákinn með rauðu hurðina.

  
Hér er hann í hlaðinu sínu :)

Annars skrapp ég svo líka í ferðalag með stelpunum mínum:) Við fórum inn í Melgerði, sem er nafnið á sumarbústaðnum mínum sem staðsettur er í Reykjafirði. Þetta var í fyrsta sinn sem ég keyri sjálft djúpið og gekk það líka svona ljómandi vel á Le Land Cruiser. Inni í djúpi áttum við góðar stundir saman. Klassískt er auðvitað að fara í sund í Reykjanesi, sem og við gerðum og náðum okkur þar í sólbrúnku og ég er ekki frá því að helmingur ferðalanga hafi tekið nokkrar freknur á sig. 
Ætla ég að setja inn nokkrar myndir frá þessu ferðalagi, og er það markmið mitt að þær verði komnar inn í kvöld, 22.04.08. Allt saman í vinnslu.


Veðrið er svo gott! Ferðirnar í bústaðinn í sumar verða ófáar held ég nú.

Ég er skotin í vínilplötum, þær eru svo fagmannlegar á að sjá. Faðir minn á nokkrar slíkar og langar mig svooo að fá að hlusta, en okkur vantar nál í spilarann okkar. Ég ætla að splæsa í einn svona spilara þegar fjármálin leyfa:)
The Beatles, John Lennon, Elton John, Edith Piaf, Johnny Cash, Paul McCartney og fleiri

- A.G.G.

Ferðalíf

18. apríl 2008 klukkan 00:24
Heil og Sæl,

Nú hef ég sett inn fáeinar myndir frá ferð Ferðafélagi Guðjóns til Akureyrar. Þar var voða gaman og mikið glens.
Endilgega kíkið á herlegheitin hér í Aðalvalmynd :)

Svo eru nokkrar myndir sem komu ekki inn, ég ætla að setja þær sem voru í uppáhaldi hér inn í færsluna :)







 







Rest er til hliðar

-Alberta Gull-

engin hætta, þér er nær

10. apríl 2008 klukkan 14:34
Góðann daginn elskulega fólk,

Þessi færsla er ekki merkileg
Það sem er merkilegt er lífið sjálft, alltaf erum við að lenda í allskonar uppákomum og sveiflum í kringum okkur.

Laugardaginn seinasta lenti ég í ákaflega skemmtilegri uppákomu. Hamraborg boðaði starfsmenn sína á fund og tekið var framm að kuldagallinn skyldi vera með í för. Fundurinn hófst snemma morguns í Arnadal, og þá var farið með okkur út í ósvissuna eftir fundinn. Þannig var nú það að við enduðum uppá heiði á vélsleðum! Og vorum þar fram á daginn að renna okkur eins og brjálæðingar á sjúkrabörum og gúmmíbátum, og fara ferðir niður svaðalegar brekkur á hraðferð á vélsleðum.

   

En nú liggur leið mín norður! Þar tekur Andrea á móti okkur Elmu og Borghild. Þetta verður gleðiferð og er mikil stemming fyrir ferðinni og  Söngkeppninni.
Allavega er ég að springa úr gleði.
Veðurguðirnir eru reyndar að hrella sál mína með vindum og snjó sínum. En það ferr á besta veg, það veit ég.
Upp á síðkastið hef ég lítið annað gert en að stunda skólann af líf og sál og unnið pínu eins og vittleysingur. Aðalega höfum við Helga Lind tekið dansinn og ljós-102 fyrir, en einmitt í ljós102 vann maður við að myndina hér að neðan af Eggert. Lítið að segja um frítíma minn hér, annað en stelpurnar mínar eru ágætlega stór partur af honum.

     



Eigiði góða helgi og framandi dag.
Nýjar myndir komnar inn!!!! tjekk it ;)



-alberta gullveig guðbjartsdóttir-

Heilalaus

04. mars 2008 klukkan 17:22
Frítími?
Hvað er það?

Ég hef ekki haft mikið af því hugtaki seinustu vikur.
Sólrisuleikritið Rocky Horror komið í sýningar og gengur það alveg glimrandi, frumsýningin stóð algerlega upppúr af ýmsum ástæðum.
Mæli með að hver og einn skelli sér á þessa sýningu, nóg af sýningum eftir! - svo verða 3 páskasýningar fyrir þá sem koma hér um páskana:)
Miðapantanir í síma 450 5555  ;)

Nú er margt búið að líða hjá undanfarnar vikur.
Eins og árshátíð MÍ - virkilega skemmtilegur sá viðburður. Ball með Paul Oscar rétt á eftir glæsilegu matarhaldi í Edinborg.
Ég tók mig til og skellti mér í greiðslu og mætti á herlegheitin með krullur í hári.

   

Já já, mikil gleði er búin að vera í kringum mig seinustu vikur, ekkert nema æfingar og strit. Þetta borgar sig þó allt saman verð ég að segja. Æðislegur félagsskapur, hvað er ekki betra en að fara með vinkonum sínum úrvinda eftir skóla og skella sér á æfingar? ég veit ekki.

En ég vil ekki hafa þetta lengra hér, vil bara minna á stórglæsilegar Nýjar myndir sme ég var að setja inn! þær eru þarna í aðalvalmynd :)

Verið heil og sæl kæru lesendur!
     

Alberta Gullveig Guðbjartsdóttir ;*

Hugakipp

30. janúar 2008 klukkan 23:40
Maður tekur einn dag í einu,
Nú er ég búin að ná mér í flensu og ber því stíflað nef og hausverk. 

Þá allavega gefst mér ágætis tími til að skella hér inn afrekstrinum úr Ljósmyndunartíma sem ég skellti mér í á mánudaginn síðastliðinn. Þar var auðvitað tekið fyrsta skrefið frá sjálfsmyndunum, og við Helga Lind reyndum að halda því í mynni kanntinum.. en ég segi ekki meir um það.
Allavega held ég að þessir tímar eigi eftir að vera ágætis skemmtun og vil ég sýna ykkur- þeim sem kærðuð ykkur að slá þetta veffang í netrammann - afrekstur fyrsta tíma.














Ég tel mig hafa fangað innri mann hvers og eins hér!

Æjj.. jæja, ég er kannski bara búin að fá of stórann skammt af verkjalyfjum og ekkert annað í dag, sjáumst á næsta leiti mis-hress.


au revoir

Alberta Gullveig

Ljóma ljós

23. janúar 2008 klukkan 02:43

Everything changes when you say it out loud..




-Alberta Gullveig

2oo7 að klárast

31. desember 2007 klukkan 21:32

Pínu annáll

Janúar
Ég eyddi áramótunum mínum í Kúbu með fjölskyldu minni. Þar var svaka stuð og hellings fjör, maður náði sér í tan og var pínu brúnaður þegar maður kom heim aftur.


Febrúar
Mánuðurinn einkenndist af ströngum sólrisuleikrita-æfingum og annarsskonar gleði í kringum leikritið Lísu í Undralandi. Þar var maður í hlutverki músar, sem reyndist svo vera svaka stuð.

   

Mars
Frumsýning Lísu og frumsýningarpartý ! Við Sverrir byrjuðum saman í mánuðinum og svo var þessi svakalega skemmtilega ferð til Frakklands. París, Mona Lisa og Effelturninn. I know you don´t have a broken leg! -  Var voðalega vinsæl settning þennan mánuðinn hjá frakklandsförum.

  


Apríl
Ég held að afmælið mitt hafi staðið mest uppúr í apríl, maður orðin 17 sjáðu til. Dimmisjón-Englar föngnuðu útskrift samtímis afmælinu mínu og var eitt stykki teiti í Golfskálanum með fleiri afmælisbörnum, Helgu Lind og Bryndísi. Próflokaball í Boló með svaka sveittum Dj.

Maí
Prófin í byrjun mánaðar – þeim var auðvitað ölllum náð í fyrstu tilraun. Svo hóf ég vinnu á Hótel Ísafirði sem ræstitæknir og var það voðalega skrautlegt allt saman, maður gerði ekkert nema að vinna í maí :)
Júní
Vinna, vinna, vinna þennan mánuð. Ég held meira að segja að ég hafi lítið annað gert en að vinna með Rás2 í eyrunum í Júní. Jú auðvitað ég hafði eina fríhelgi og notaði hana í að skreppa til rvk. að versla pínu og hitta systur mínar. Svo var hittingur frakklandsfara, grill og kósý.

Júlí
Í byrjun mánaðar eða á mánaðarmótunum  var farin sumarbústaðar-helgarferð inn í Reykjafjörð.  Svo var það bara haldið áfram að vinna þegar maður snéri heim - Hótel Edda góðann daginn
Tók bílprófið og var komin á göturnar á Volo daginn eftir! vúhú

--

Ágúst
Sverrir fór til Paragvæ í byrjun mánaðar. Ég hætti sumarstörfum á Hótelinu og Hamraborg tók við. Við Elma og Bára vorum þjónustustúlkur í fyrsta og eina brúðkaupi sem ég hef farið í, hjá henni Birgittu a.k.a. Biggó. Skrautlegt og arty brúðkaup það =) Skruppið á menninganótt með Elmu og hitt á Báru og fleiri. Svo byrjaði skólinn bara, Busunin umdeilda í hverju dagblaði átti sér stað þennann mánuðinn.



September
Þessi mánuður er alveg dottinn út úr kollinum á mér.. ég held að þarna hafi vesenið í skólanum hafist og sms-skeytin skemmtilegu fóru að berast til nema MÍ.
Október
Annsi  skemmtilegur mánuður, Bubbi heimsækir Elínu í skólann og ég fer til Madrid í verslunarferð! Allskonar flotterí keypt þar og voðalega gaman skal ég segja ykkur.  Var næstum búin að gleyma.. sokkabönd -haha:D

 ---

Nóvember
Skólinn bara.. ég man ekki eftir eitthverju merkilegu til að setja hér, eða jú 1.des ballið var auðvitað haldið í lok nóv. Dósasöfnun og talning var einkennandi fyrir fátæka námsmenn eins og mig og þannig borgaði maður sig inn á ball :) Þar var kátt á hjalla, allir dansandi í grifjunni í skólanum.. Voðalega spes að vera í skólanum á balli.
Desember
Þessi ágæti mánuður. Prófin tekin með trompi og vinnan með. Jólaundibúningur hófst snemma og það var krafist skipulagningar á tímanum, allavega hjá mér. Stjörnuspáin tekin fyrir og við vinkonurnar eyddum okkar tíma í að ráða þær.  Jólahlaðborð Hamraborgar, svaka stuð. Svo var þetta ágæta Jólaboð þar sem við nokkrar stúlkur skemmtum okkur í Partý og kó, og margt annað eins og neonljós kom okkur í gott skap.
Ég vil bara þakka fyrir árið og biðja ykkur að þakka mér fyrir þennan áægta annál ;)
Við sjáumst hress 2008, gerum það ár eins gott og skemmtó eins og þetta hér sem er að líða.
Sprengið úr ykkur allann mátt og gangið hægt um gleðinnar dyr.



Alberta Gullveig =)

Prófíll

  • Nafn: Alberta Gullveig Guðbjartsdóttir
  • Staður: ísafjörður

Leit